Lokasýning Gosa

NemendafélagFréttir

Leikfélagið Kopar hefur verið að sýna leiksýninguna Gosa seinustu helgi. Leiksýningin Gosi fjallar um spýtudreng sem lifnar við, faðir hans, Jakob sendir hann ásamt engisprettunni Tuma í skólann, en í stað þess að fara í skólann lenda þeir í miklum ævintýrum. Einungis ein sýning er eftir en hún er núna á miðvikudaginn kl. 19, svo um að gera fyrir þá sem hafa ekki komist á þessa frábæru sýningu að næla sér í miða (linkur hér fyrir neðan), og við hvetjum alla þá sem hafa séð hana að koma við aftur.
linkur: GOSI – 18. mars kl. 19:00 | Vefverslun