Árshátíð NMB var haldin þann 10. Febrúar. Húsið opnaði 18:30, og byrjuðu nemendur að mæta allir í sínu fínasta pússi. Þema kvöldsins var Casino night, og klæddust nemendur eftir því. Dagskrá hófst kl 19:00 þar sem veislustjórinn, Jón Jónsson var kynntur á svið, og sá um það að halda uppi stemmningu yfir kvöldið. Kvöldið var mjög viðburðarríkt, saminn var nýr söngur fyrir skólann (þar sem N1 lagið þótti ekki nógu gott). Skreytinganemdin valdi tvo nemendur og tvo kennara sem þóttu best klæddir (best dressed), sigurvegararnir voru þau Hildur Rós og Kristján Páll fyrir nemendurna, og Elín og Sölvi fyrir kennara. Á meðan aðalréttinum stóð var ársátíðarmyndbandið sýnt, mynd bandið var mjög vel gert og endaði á lagi sem finna má á spotify. Síðan var einn leikur af Kahoot um skólan sem hún Bryn Thorlacius sigraði. Nemendur og kennarar voru sjálfir með ýmis flott atriði, Sölvi og Sigurgeir tóku lagið ruplum og rænum, Bjarni Trausta var með óvænt atriði, sem hann vissi ekki einu sinni af sjálfur, en söng lagið Austurstræti. Jón Jónsson tók nokkur lög, og Ice guys new generation tóku atriðið sem sigraði á Baulinu. Ernir og Guðný tóku lagið Djamm í kvöld, eins og þau hafa gert á seinustu þrem árshátíðum, og verður atriðið betra með hverju árinu. Í matinn var þriggja rétta máltíð í boði Bara Bistro
Egla þakkar NMB fyrir mjög skemmtilega árshátíð
Myndir af samkomunni finnast hér (Linkur: Árshátíð 2026 | Nemendafélag)
