Uppáhalds “multi-tasker” okkar lang flestra er án efa hann Sölvi G. Gylfason. Eins og margir vita er hann formaður Knattspyrnufélags Skallagríms og tekur það oft að sér að mála bílastæði… eða hvað?
Margir telja sig hafa séð hann úti um hábjarta nótt, flakkandi á milli húsa með lítinn poka með sér í för. Hann klæðist þá kjól og virðist vera með vængi. Nemendur tala um að daginn eftir segist hann hafa verið að mála bílastæði og þess vegna sé hann svo þreyttur, en eftir mikla rannsókn komst í ljós að sú er ekki raunin. Sölvi er því ekki að mála bílastæði, heldur er hann engin annar en tannálfurinn sjálfur.