STEAM Kynning 2026

NemendafélagFréttir

Í þriðja Stím áfanga Menntaskóla Borgarfjarðar er nýsköpun kennd, og sér Sigrún Baldursdóttir um þann áfanga. Þar fá nemendur að hanna vöru, þróa hana og loks kynna hana á opnu húsi. Þann 7. maí 2026 kynntu nemendur vörur sínar fyrir gestum, og var kynningin staðsett í hér skólanum. Nemendur voru með allskonar skemmtilegar vörur eins og til dæmis, bollakökur, spil, fatalínur, viskastykki og fleira. Einnig var lifandi tónlistaratriði sem spilað var fyrir gesti á kynningunni. Kynningin gekk mjög vel, og voru verkefni nemenda fjölbreytt og skemmtileg.